157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:21]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigurði Helga Pálmasyni fyrir prýðisræðu. Fimmtán ára samgönguáætlun með fimm ára framkvæmdaáætlun, það er mikil vinna lögð í slíkt plagg. Sá sem hér stendur hefur reynslu af því frá fyrra kjörtímabili að taka þátt í slíkri vinnu.

Við erum að tala um rúma 360 milljarða kr. í framkvæmdahluta fyrstu fimm árin. Þetta er nánast sama tala og áföll ríkissjóðs á tímabilinu 2019–2024. Það er áhugavert. Hér finnst öllum þetta vera háar upphæðir sem varið er til samgöngumála. Á tímabilinu 2019–2024 var beinn kostnaður ríkissjóðs af áföllum — WOW air, Covid-19, stríðinu í Úkraínu, jarðhræringum á Reykjanesi — þessi tala, 343 milljarðar kr. Beinn kostnaður en ekki óbeinn kostnaður. Það er áhugavert.