samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Fyrst það er svona mikil eftirspurn eftir umræðu um flugmál spyr ég hv. þingmann beint um þau. Hvernig finnst hv. þingmanni sú umræða ganga fyrir gerð meirihlutaálits varðandi þau? Það er af mörgu að taka í flugmálum eins og hv. þingmaður þekkir. Hv. þingmaður þekkir til flugmála. Það væri kannski ágætt, fyrst eftirspurnin er svona gríðarleg, að fá svar við því sem sá sem hér stendur hefur helst bent á varðandi varaflugvallargjald, að þeir fjármunir verði nýttir til uppbyggingar á varaflugvöllum landsins og alþjóðaflugvallakerfi. Ég spyr þá að þessu til að koma til móts við eftirspurn eftir því að fá spurningu, fyrst hv. þingmaður er búinn að undirbúa sig sérstaklega fyrir spurningar á þessu sviði.