samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni kærlega fyrir seinna andsvar. Ástæðan fyrir því að ég kem með þennan doðrant um flugmál með mér er að ég veit að hv. þingmaður er mjög mikið inni í þessum málum. Ég skil afstöðu hans varðandi varaflugvallargjald mjög vel. Eins og við sögðum í dag er þetta þannig mál að maður vildi að maður gæti gert eitthvað meira. Það er mjög flókið að fara í gegnum samgönguáætlun og ætla að reynast öllum vel. Ég ætla að loka þessu með því að segja að ég ber mikla virðingu fyrir þekkingu hv. þingmanns og ég skil afstöðu hans í þessum málum mjög vel.