samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi fína ræðu. Það var áhugavert að hlusta á hv. þingmann því að þarna var farið inn á svona olnbogabarn samgönguáætlunar en er ekki síður mikilvægt. Þar sem hv. þingmaður er nú kominn af sennilega einum af okkar þekktustu hestamönnum landsins þá langar mig að ræða aðeins um reiðvegi. Í nefndaráliti meiri hluta er komið inn á þá fjárvöntun sem þar er fyrst og fremst og það sætir furðu hjá okkur öllum sem höfum komið að samgönguáætlun í gegnum tíðina, hvaða ríkisstjórn sem það er, sama hver það er, að þetta er alltaf sá liður sem mætir afgangi þrátt fyrir að sennilega eitt okkar sterkasta og besta vörumerki sé íslenski hesturinn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)