157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:27]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég ætla nú bara að byrja á að segja að Sigurður Ólafsson, afi minn, væri svolítið stoltur, veit ég, ef hann vissi af því að ég hefði verið að ræða um reiðvegi hér á Alþingi. Ég er á sama máli, þetta er nýtt fyrir okkur sem erum í þessum heimi, sem er þá íslenski hesturinn, að við höfum alveg séð þessa breytingu. Það er t.d. ekki gott að það séu reiðstígar og fólk sem er hjólandi og gangandi á sama stað. Það er bara alls ekki nógu gott. Við þurfum að aðskilja þetta og við vitum hvað þarf til að breyta þessu. Við vitum hvaða leið við þurfum að fara. Í þessari áætlun er þessi þriðjungur sem verið er að fara sem við erum búin að benda á að sé alls ekki nógu gott og að það þurfi að fara í heildræna skoðun á þessum málaflokki. Ég held að það sé bara kominn tími á að það sé farið í heildræna skoðun.