157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:28]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisandsvar. Það er alveg klárlega þannig að þetta er eitt af þeim málum sem ég held að við þingmenn ættum að sameinast um hér og einhenda okkur í því að sennilega er hestamennska einn besti kyndilberinn fyrir íslensku þjóðina. Hingað koma á hverju ári fleiri þúsundir erlendra gesta til að fara á hestbak. Burt séð frá því hvort það er bara hluti af ferðamennsku eða til yndisauka og ánægju að ríða út þá er því miður víða pottur brotinn. En við verðum samt að hafa það í huga og taka það inn að það hefur víða verið unnið gott verk og það er ekki endilega af hendi þeirra sem koma að samgönguáætlun. Það er meira og minna gert í sjálfboðavinnu aðila sem stunda hestamennsku vítt og breitt um landið til að reyna að gæta öryggis vegna þess að mikið af þeim reiðvegum sem hér um ræðir er við hliðina á stofnbrautum, þjóðvegum landsins, þar sem meðalhraði er 100 km á klukkustund. Þannig að þetta er gríðarlega stórt atriði sem við þurfum að huga að.