samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Þetta er allt saman rétt. Það er líka eitt sem mig langar til að nefna sem við höfum rætt um í nefndinni og það eru þessar leiðir, t.d. eins og aflagðar gamlar brýr sem eru notaðar á reiðvegum. Þarna er í raun og veru enginn aðili sem er með ábyrgð á þessum mannvirkjum sem er búið að leggja af og ég held að það sé mjög mikilvægt. En þetta kemur í raun og veru allt saman fram í nefndarálitinu. Við þurfum endurskoðun á fjárveitingu, við þurfum skýrar reglur t.d. um viðhald á þessum stöðum vegna þess að þetta getur orðið mjög hættulegt og við höfum heyrt það. Mitt fyrsta starf var að vinna á hestaleigu á Vopnafirði þar sem ég fór með ferðamenn og sýndi þeim Vopnafjörð. Ég held að við þurfum bara, eins og þú talar um, að sammælast um það að lyfta þessum flokki upp. Ég held að það sé alveg skilningur hjá ráðherra og það var skilningur í nefndinni. En við þurfum bara, eins og þegar Alþingi er best, að vinna saman og laga það.