samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina. Mig langar til að halda aðeins áfram á þeim nótum sem forveri minn hér var varðandi reiðvegina. Það er nú bara þannig að Halldór Halldórsson, einn af þeim sem veitti nefndinni umsögn, hefur skrifað heila bók um reiðvegi, kortlagt reiðvegi, þannig að bara til áréttingar þá er búið að vinna mikla grunnvinnu. Eitt af því sem er áhugavert í þeirri bók er að þar er fjallað sérstaklega um menningargildið en líka fjárhagslegt gildi þess að við séum að tengja betur saman reiðvegi og eins það að auðvitað hefur umhverfið breyst. Það er orðin miklu meiri umferð ólíkra farartækja á því sem áður voru hinir hefðbundnu reiðvegir. Ég tek undir að það var góð umræða um þetta í nefndinni en hér er tækifæri til að gera betur.
Mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í innviðafélagið og hraða framkvæmda sem er verið að kalla eftir: Telur hv. þingmaður það raunhæft að innviðafélagið verði komið til framkvæmda og byrjað að færa yfir í það verkefni strax á næsta ári?