157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:33]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Höldum áfram með reiðvegina. Jú, jú, þetta er eins og við höfum talað um, að við þurfum bara að lyfta þessu upp. Þetta er í raun og veru orðinn það stór atvinnuvegur að við getum ekki litið fram hjá því og það verður að fara í það að skoða þetta heildrænt. Og varðandi innviðafélagið, já, ég tel það víst að það verði komið á næsta ári.