samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil byrja á að undirstrika það sem hv. þingmaður kom inn á hér í byrjun, hversu góð samvinna hefur verið í nefndinni. Ég tel að í breytingartillögunni birtist dálítið þessir rauðu þræðir sem við náum ekki að afgreiða. Vegna þess að það er ekki búið að færa yfir í innviðafélagið þá náum við ekki að afgreiða sjóvarnirnar og ýmislegt sem tengist fluginu sem bara heilt yfir var verið að kalla eftir. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, af því ég veit að hann er metnaðarfullur og framsýnn: Geturðu tekið undir að það séu ákveðin vonbrigði hvað við erum í raun og veru að sjá litla aukningu til samgöngumála miðað við hvernig fjárlögin voru 2024 og 2025? Þurfum við ekki að gera enn þá betur hér og forgangsraða meira í þágu þessa málaflokks? (Forseti hringir.) Ég verð að segja að miðað við umræðurnar, miðað við þörfina og miðað við þær væntingar sem var búið að tala um í samhengi við fjármálaáætlun (Forseti hringir.) er raunaukningin kannski ekki eins og við sem viljum gera sem mest sjáum það. Geturðu tekið undir það?