samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Frá fyrsta aðila sem kemur á fundinn til okkar þá sjáum við náttúrlega að það þarf að gera rosalega mikið og ég held að í þessum störfum mínum hérna á þingi hafi ég aldrei fundið það jafn greinilega í neinu máli að allir umsagnaraðilar sem komu fyrir nefndina voru í raun og veru í grunninn að tala um það sama, að það vantaði fjármagn. Ég held líka að það sé svolítið flókið þegar þú færð svona mál, af því við tölum oft um ákveðna pólitík þar sem við búum á ákveðnum svæðum, þú ert kannski tengdur svæðinu þínu og þú vilt gera rosalega mikið fyrir svæðið en þörfin er bara svo gríðarleg og hún er alls staðar. Þú spyrð mig hvort það ætti að koma meira. Auðvitað er það það sem allir vilja. Auðvitað vilja allir að við náum að gera þetta hraðar og meira en raunin er stundum öðruvísi. Ég hef mikla trú á að þetta innviðafélag muni skipta sköpum í samgöngum hérna á Íslandi vegna þess að við erum þarna að reyna að finna lausn á ákveðnu vandamáli sem hefur verið hér í áratugi.