samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Reyndar kom þarsíðasta ríkisstjórn með samgönguáætlun og sú síðasta var tilbúin með hana en það var náttúrlega kosið á nýjan leik þegar hún var að klárast þá. Ég vil þakka fyrir að hér sé minnst á ferðaþjónustuna, sem ég komst ekki að að ræða í minni ræðu áðan, sem hefur lítið verið rædd. Hún er orðin gríðarlega stór þáttur af allri umferð í landinu eða kannski 25% af umferð í landinu. Það eru í kringum 25.000 bílaleigubílar sem keyra um landið í skammtímaleigu þannig að þetta er gríðarlega mikilvægt atriði. Síðan er vetrarferðaþjónustan og þjónusta Vegagerðarinnar varðandi vetrarferðaþjónustu, sem er gríðarlega mikilvæg fyrir ferðaþjónustuna. Vonandi rætist úr því. Ég vildi rétt spyrja hv. þingmann um hálendisvegina, Kjöl og Sprengisand, í tengslum við ferðaþjónustuna. Það er mikill áhugi fyrir norðan og mikill áhugi í uppsveitum Árnessýslu á því að byggja upp Kjalveg og Sprengisand. Hvaða hugmyndir hefur hv. þingmaður um þetta?