157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:55]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir andsvarið og fyrir það að hrósa mér fyrir að hafa talað um ferðaþjónustuna og vetrarferðaþjónustuna vegna þess að mér finnst hún náttúrlega skipta miklu máli. Hún skiptir ekki síst miklu máli í mínu kjördæmi, sem er Suðurkjördæmi, þar sem, eins og ég fór inn á, 80% ferðamanna fara um Suðurlandsundirlendið. Ef fjallað er um Keflavík eða ef við tökum Keflavíkurflugvöll þá má segja að hver einasti ferðamaður lendi í Suðurkjördæmi með einum eða öðrum hætti.

Hvað varðar Kjalveg þá er ég að sjálfsögðu fylgjandi því að þar verði samgöngur bættar. Ég veit ekki hvað þarf til, ég sit ekki í umhverfis- og samgöngunefnd og hef ekki tekið þátt í umræðum um þetta í smáatriðum en ég myndi að sjálfsögðu styðja það. Ég held að það yrði mikil samgöngubót, en hvort það sé í forgangi er aftur á móti annað mál.