157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:56]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er nú þannig að ferðaþjónustan á Íslandi er að þróast mikið. Ætli hún sé ekki um 9% af landsframleiðslu í dag? Ferðaþjónustan hefur skapað 30–35% á undanförnum árum af gjaldeyristekjum þjóðarinnar, fór mest upp í 42% árið 2018. Það er gríðarlega mikilvægt að dreifing ferðamanna sé þannig og að þeim séu skapaðar aðstæður til að ferðast um landið. Dreifileiðin er bílaleigubílar þannig að það er gríðarlega mikilvægt. Sá sem hér stendur hefur sjálfur verið með mál í þinginu sem snýr að því að tengja um Kjalveg yfir norðurhluta landsins og síðan inn á Gullfosssvæðið og Geysi um Kjalveg. Síðan getum við líka rætt í þessu samhengi um Sprengisandsleiðina og þá þróun sem getur orðið þar síðar. Það er gríðarlega mikilvægt bara upp á það að við vitum að það reynir töluvert á þanþolið á Suðurlandi í ferðaþjónustu mjög víða. Það gæti orðið mikill hagur af því fyrir íslenskt samfélag og aukinn þjóðhagslegur ábati á öllu landinu að nýta innviðina betur yfir lengra tímabil ársins. Þar eru mestu möguleikarnir á norðurhluta landsins og á austanverðu landinu.