157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:57]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Ég fann reyndar ekki spurningu, þetta voru meira svona vangaveltur um stöðu mála og þær eru oft góðar. Ég er alveg sammála því að það væri mjög gott að dreifa ferðamönnum meira. Það er náttúrlega þannig með Suðurlandið að það liggur bara mjög vel við, þar eru margir staðir. Það er náttúrlega svo þægilegt að fara Gullna hringinn. Þetta er ekki löng ferð, þetta er dagsferð og fyrir þá sem stoppa stutt er gott að fara Gullna hringinn og fara á Þingvelli og svoleiðis. Svo er náttúrlega einstaklega auðvelt að rata um Suðurlandið, þú keyrir bara beint, eiginlega bara „basically" þannig. Fylgdu bara veginum og þú ferð beint alla leið á Höfn. Þú kemst þannig án þess að taka eina einustu beygju, liggur við. Ég tek undir það með þingmanninum að það skiptir máli að dreifa ferðamönnum um landið eins og kostur er.