samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi góða ræðu og tek undir með hv. þingmanni að það er tiltölulega einfalt að rata á þjóðvegi 1 á Suðurlandi en það vandast nú málið þegar maður fer út af þjóðvegi 1, þá eigum við alla vega erfitt sem höfum vanist því að styðjast við fjöll til beggja handa og ár og reyna að rata. En nóg um það. Hv. þingmaður er oddviti Suðurkjördæmis og frá höfuðborginni inn í kjördæmið eru tveir gríðarlega umferðarþungir vegir og ef ég hef tekið rétt eftir þá fara um Reykjanesbraut liðlega 21.000 bílar á dag, sömuleiðis er gríðarleg umferð yfir Hellisheiði. Nú hefur það verið þannig í gegnum tíðina að við höfum tekist á um nýframkvæmdir og það sem snýr að veggjöldum. Mig langar að beina þeirri spurningu til hv. þingmanns sem snýr að uppbyggingu á þessum mikilförnu vegum, hvort það sé ekki eðlilegt að við förum nú að skoða að það séu rukkuð veggjöld á nýjum vegköflum, sérstaklega á vegköflum sem eru svona mikið farnir eins og Reykjanesbrautin með 21.000 bíla.