157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:00]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get séð að það gæti verið freistandi fyrir ríkissjóð að innheimta veggjöld á fjölförnum vegi eins og t.d. Reykjanesbrautin er. En það er hins vegar stefnan að við séum ekki að innheimta veggjöld á þegar gerðum mannvirkjum og vegum eins og Reykjanesbrautin er nú þannig að það stendur ekki til. En það eru nýjar framkvæmdir sem verður farið í sem verða að einhverju leyti og hugsanlega einhver veggjöld á. Ég get eiginlega ekki svarað því öðruvísi, þetta er náttúrlega eitthvað sem verður skoðað líka í framtíðinni hvernig þetta verður, innviðafélagið og allt þetta, hvernig þetta verður allt saman skipulagt. En eftir því sem ég best veit þá er það alveg ljóst að það verða ekki lögð veggjöld á Reykjanesbraut.