samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og ég get svo sem alveg skilið það sjónarmið. En núna horfum við vonandi til þess í náinni framtíð að það verði komin Sundabraut og það verða væntanlega veggjöld á þeirri leið. Við erum síðan með veg um Hellisheiði sem ekki verða veggjöld á. Við erum með Reykjanesbrautina sem verða ekki veggjöld á samkvæmt hv. þingmanni þannig að ég velti því fyrir mér hvort það sé ekki mikilvægt — vegna þess að hér býr langflest fólk á suðvesturhorninu, hér er langmesta umferðin. Eins og kemur fram í texta sem tengist innviðafélaginu, þar sem líka er verið að tala um samvinnuverkefni, er hægt að beita innviðafélagi þar sem eru markaðslegar forsendur fyrir því. Það eru klárlega markaðslegar forsendur fyrir því að hafa veggjöld á þeim vegum sem er mikil umferð á. Við þekkjum þetta vel t.d. í Noregi. Þú keyrir nýjan vegkafla, þá borgarðu fyrir það. Ef þú ferð af þessum vegkafla þá hættirðu að borga. Þetta er eitt af því sem við þurfum að fara að skoða. Hv. þm. Jón Gunnarsson kom vel inn á það í sinni ræðu sömuleiðis sem snýr að því hvernig við eigum að reyna að fjármagna okkar vegagerð.