samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Já, það eru, eins og ég kom að í ræðu minni, markaðslegar forsendur svokallaðar fyrir vegaframkvæmdum helst á Stór-Reykjavíkursvæðinu og hér í kring, kannski Hvítár- Hvítársvæðið eins og það er stundum kallað. Það ætti að losa fjármagn fyrir ríkið til að fara í framkvæmdir sem eru ekki, svo maður noti þetta leiðinlega orð, arðbærar eða eitthvað þess háttar en engu að síður nauðsynlegar. Þannig að ég held að við stöndum svolítið frammi fyrir því. Það er eitt, hv. þingmaður nefndi Sundabraut og ef hún verður byggð þá er búið að gefa það út að þá verði veggjöld þar, en það er alltaf hjáleið. Það verða aldrei innheimt veggjöld nema það sé hjáleið og það skiptir máli af því að þá hefur fólk val um hvort það fer Sundabrautina í því tilfelli eða fer fyrir Kollafjörðinn og sem leið liggur um Mosfellsbæ og allt það. (Forseti hringir.) Ég veit svo sem ekki hvernig ég á að svara þessu öðruvísi svo ég læt staðar numið.