samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu, margt áhugavert í henni. Mig langar til að vera kannski á sömu nótum og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson varðandi spurningar. Ég hlustaði á hv. þingmann nefna að það kæmi ekki til greina að setja veggjöld á þegar gerð mannvirki eða þegar gerða vegi. Mig langar í ljósi þess að spyrja hvort þingmaðurinn sjái það fyrir sér að þegar innviðafélagið t.d. hefur farið í framkvæmdir og veggjöld hafa greitt upp það verkefni sem um er að ræða þá verði gjaldtöku hætt.