samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir andsvarið, hvort það eigi, þegar búið er að greiða upp framkvæmdir, að hætta veggjöldum. Mér skilst að það sé svona almenna reglan. En svo má alveg velta því fyrir sér og ég hef t.d. heyrt því fleygt, ekkert endilega í sambandi við þessa umræðu heldur bara almennt, að það hafi verið stór mistök að hætta gjaldtöku í Hvalfjarðargöngunum vegna þess að það hefði getað greitt upp aðrar framkvæmdir. Ég held að þetta sé bara eitthvað sem hljóti að verða skoðað. En mér skilst að það sé almenna reglan að þeim verði hætt, alla vega eins og litið er á málin núna.