157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:07]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Við eigum svo sem eftir að sjá hvernig úr rætist en eins og ég les í fyrirliggjandi frumvarpi um innviðafélagið þá sér maður alla vega ekki skýr fyrirmæli um að gjaldtöku skuli hætt þannig að væntanlega ræðst það af ákvörðun þess félags. Mig langar í framhaldinu til að velta því upp með hv. þingmanni af því að hér er eiginlega dauðafæri á bls. 16 og 17 í nefndarálitinu þar sem eru talin upp nokkur svæði sem mögulega kæmu til greina fyrir hið svokallaða innviðafélag. Þar má nefna á höfuðborgarsvæðinu leiðina um Kjalarnes, það má nefna Akrafjallsveg – Borgarnes og einnig eru hér nefnd Hvalfjarðargöngin. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að gjaldtöku væri háttað ef öll þessi verkefni hefðu átt sér stað yfir tiltölulega stuttan tíma, framkvæmdum væri lokið en gjaldtaka væri enn í gangi?