157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:08]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Þetta hefur verið nefnt og vissulega væri svolítið óþægilegt ef það væri verið að stoppa og stoppa til þess að borga veggjöld. Ég sé þetta kannski sem vandamál sem þurfi bara að leysa síðar og persónulega, og ég segi þetta algerlega án ábyrgðar, hef ég velt því fyrir mér hvort það væri hægt að kaupa einhvers konar áskrift fyrir þessa leið eða jafnvel fyrir landið eða hvernig sem fólk gæti séð það fyrir sér. Það var nú þannig, held ég, í Hvalfjarðargöngunum. Þá voru íbúar Akraness t.d. með afslætti og áskrift á meðan fólk eins og ég var með miða. Ég hef velt þessu fyrir mér og ég segi þetta algerlega án ábyrgðar, ég er ekki að búa til einhverja stefnu hérna, en það væri hægt að búa til einhvers konar áskriftarleiðir eða eitthvað þannig. Það er eitthvað sem ég gæti séð fyrir mér að gerðist.