samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða yfirferð og sérstaklega yfirferð yfir Suðurkjördæmi þar sem mörg verkefni eru brýn eins og hv. þingmaður kom inn á. Við erum að tala um Vestmannaeyjar sem hafa verið að glíma við áskoranir. Við erum að tala um sjóvarnirnar sem birtast m.a. á Suðurnesjum og í Vík. Við erum að tala um einbreiðar brýr sem eru margar, ekki síst á Suðausturlandi. Svo erum við að tala um áskoranir sem tengjast tengivegum og margt fleira í þessu kjördæmi sem er, eins og hv. þingmaður kom inn á, í gríðarlega mikilli efnahagslegri sókn. Það er ákveðin áskorun í slíkum uppbyggingarfasa að ríkisvaldið haldi í við þá þróun, sé ekki að tefja hana með því að halda aftur af framkvæmdum þegar fólki er að fjölga og það er efnahagsleg sókn víða. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hún hafi áhyggjur af því að stofnun innviðafélags — ég held að við séum flest jákvæð í garð þess — mögulega tefji fyrir (Forseti hringir.) af því að aukafjármagn hangir á stofnun félagsins. Hefur hv. þingmaður áhyggjur af framkvæmdafasa hins nýja félags og hvernig muni ganga að fá inn fjármagn í þessi brýnu verkefni?