157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:11]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir sitt andsvar. Hún spyr hvort ég hafi áhyggjur af því að innviðafélagið muni tefja fyrir framkvæmdum. Nú hefur fólk sem er mun klárara en ég í svona hlutum farið vel yfir þessi mál og ég tel svo alls ekki vera. Ég veit ekki betur en t.d. það að fjárfesta í Hvalfjarðargöngunum hafi bara verið góð fjárfesting og ég held að þetta geti greitt fyrir ýmiss konar framkvæmdum. Það er t.d. komið félag, ekki þetta innviðafélag, um göng til Vestmannaeyja sem hlýtur að þýða að þar sjái fjárfestar sér akk í því að taka þátt í svona. Ég myndi gjarnan vilja sjá innviðafélagið fara í það að gera göng undir Reynisfjall þar sem fara 4.000–5.000 bílar á dag. Það hlýtur að teljast arðbær fjárfesting sem er þá ekki að taka pening af því fé sem ríkið hefur til að fara í framkvæmdir og getur þá nýtt í annað.