157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:12]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna og ég get tekið undir það, ég held að ef innviðafélagið nær sér hratt á strik og ef fjármagnið sem skapast, þ.e. svigrúmið, er sannarlega nýtt í verkefni sem eru ekki jafn arðbær, eins og kannski birtist í þeirri tillögu sem meiri hlutinn setur fram, þá getur það verið spennandi. Það er ýmislegt sem tekur á sjóvörnum, einbreiðum brúm og fleira þar þannig að ég ætla að leyfa mér að vera jákvæð og spennt á þessum tímapunkti og mun sannarlega styðja vel við framgang þessara mála.

Mig langar til að víkja í seinna andsvari að almenningssamgöngum. Ég rifjaði það upp hér í þingsal á dögunum að þegar maður var að ferðast austur og maður tók Austurleið. Þá voru engar bílaleigur. Þá bara fóru allir ferðamenn með Austurleið. Núna erum við að glíma við ákveðnar áskoranir í umferð á vegunum og mig langar til að heyra, núna þegar Selfoss og Þorlákshöfn (Forseti hringir.) og fleiri bæir í Suðurkjördæmi er í miklum vexti, Reykjanesbær og fleiri, hver þín draumsýn er varðandi almenningssamgöngur á þessu svæði.