157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:14]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eiginlega það fyrsta sem kom upp í hugann á mér þegar hv. þingmaður spyr mig um mína draumsýn er að mig dreymir yfirleitt ekki um almenningssamgöngur. En að sjálfsögðu þarf að efla þær sérstaklega við þessa þéttbýlisstaði. Það virðist vera þannig þegar talað er um almenningssamgöngur eins og frá Selfossi, Þorlákshöfn og Reykjanesbæ að það snýst yfirleitt bara um hvernig eigi að komast til höfuðborgarinnar. Það er spurning hvort það eigi líka að beina þeim að öðrum leiðum og í aðrar áttir. En ég skal bara viðurkenna að þetta er ekki það sem ég hef mikið velt fyrir mér. Yfirleitt snýst þetta um það að það þurfi leið til höfuðborgarinnar og svo til baka. Hvort það sé alltaf rétt áhersla er aftur á móti spurning. Það er væntanlega af því að það er það arðbærasta í almenningssamgöngum af því að flestir eru á þessum leiðum á milli Reykjavíkur og síns heima, þessara bæja.