samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða samgönguáætlun sem skiptist í þrjú tímabil. Það er svokölluð framkvæmdaáætlun sem er frá árunum 2027–2030, síðan annað og þriðja tímabil frá 2031–2035 og svo frá 2036–2040 og það kallast aðgerðaáætlun. Í vinnu nefndarinnar komu margir góðir gestir og góð umræða átti sér stað við gesti og auðvitað er það svo að þegar gestir sækja nefndina heim þá eru að sjálfsögðu áherslurnar mismunandi eftir því hverjir koma, hvar menn búa og annað og auðvitað vilja allir fá meira. En þessi áætlun sýnir að hluta til að það hefur kannski lítið ef ekkert upp á sig að hugsa um þetta annað og þriðja tímabil, svokallaða aðgerðaáætlun. Það er í rauninni þannig að þessi samgönguáætlun tekur við af þeirri sem er í gildi og þá koma bara nýjar pólitískar áherslur. Ríkisstjórnin kemur með aðrar áherslur og það sem við eigum að vera að horfa á eru fyrstu fimm árin. Í rauninni hafa hin tíu, fimmtán árin lítið að segja af því að það er einhvers konar óskalisti, ófjármagnaður óskalisti. Bara eitt gott dæmi er t.d. Grímseyjarferja sem mun kosta 1,5–2 milljarða. Hún er sett á dagskrá 2031. Þá á að koma ný Grímseyjarferja en í rauninni þyrftum við að byrja þá að hanna og smíða nýja ferju á næsta ári ef hún á að koma 2031. Það tekur a.m.k. fjögur ár að hanna og smíða ferju. En það er enginn peningur áætlaður í nýja ferju, enginn. Það er í rauninni bara settur svona puttinn upp í loftið og ártalið 2031 ákveðið frekar en eitthvert annað.
Það verður að segjast alveg eins og er, virðulegur forseti, að þessi áætlun er mikil vonbrigði fyrir Norðausturkjördæmi. Hún er það. Okkur þingmönnum Norðausturkjördæmis þykir við bera skarðan hlut frá borði í þessari áætlun. Ég ætla að fá að fara yfir aðeins nokkra hluti og ætla þá að byrja á Norðurlandi eystra. Ég verð að segja að það sem er þó ánægjulegt í áætluninni er að það á að klára Brekknaheiði og Skjálfandabrú í Kinninni er á áætlun frá 2026–2029. Það er ánægjulegt að þessi samgöngumannvirki og -framkvæmdir séu á áætlun og ekki tekin af. En því miður, virðulegur forseti, eru vonbrigðin aðeins fleiri. Það eru gríðarlega mikil vonbrigði að brú yfir Jökulsá á Fjöllum, sem er orðin 79 ára, byggð 1947, sé ekki á áætlun fyrr en 2031–2040. Ef brúin verður vígð 2040, þá verður núverandi brú orðin 93 ára gömul brú sem er tenging milli norður- og austursvæðis Norðausturkjördæmis, virðulegur forseti, brú sem nú þegar er komin með þungatakmarkanir, brú sem nú þegar er farin að standa í vegi fyrir atvinnulífi og verðmætasköpun í Norðausturkjördæmi.
Það eru líka vonbrigði að brú yfir Skjálfandafljót við Fosshól skuli ekki vera á dagskrá fyrr en eftir fimm til sex ár. Þessi brú er mjög umferðarþung á þjóðvegi 1 og í ofanálag hættulegur farartálmi. Þetta er hættulegt vegstæði, virðulegur forseti, og ég held að flestir þingmenn sem hafa keyrt um þessa brú átti sig á því um hvað ég er að tala þegar ég er að tala um Skjálfandabrú við Fosshól.
Mikilvæg vegaframkvæmd, tvöföldun vegar frá Akureyri til Þelamerkur, er hér eftir 10–15 ár, á þriðja tímabili þessarar samgönguáætlunar. Það er líka vont til þess að vita að hringtorgið í Eyjafjarðarsveit, nánar tiltekið við gatnamótin inni í Eyjafjarðarsveit, rétt hjá Skógarböðunum ef einhverjir geta staðsett sig þar, er ekki á dagskrá fyrr en eftir a.m.k. tvö til þrjú ár, líklega þrjú ár. Þetta hringtorg er orðið mikill farartálmi og umferðaröryggi gangandi fólks, þeirra sem eru gangandi og hjólandi, er í rauninni ógnað á þessum stað. Það ætti, virðulegur forseti, verð ég að segja, að vera í algerum forgangi hjá Vegagerðinni að setja niður þetta hringtorg.
Síðan eru það aðflugsljósin á Akureyrarflugvelli. Þau verða mögulega á næsta ári ef peningarnir fást frá innviðafélaginu, mögulega. En það er allt stórt ef. Ef peningurinn kemur úr innviðafélaginu sem, nota bene, er ekki búið að stofna. Hríseyjarferjan Sævar, sem er byggð árið 1999, er á áætlun 2033 og verður þá orðin 34 ára gömul. Það er ekki búið að áætla eina eða neina peninga í þessa ferju. Þetta er bara svona ártal sem virðist vera sett þarna niður. Ég fór yfir Grímseyjarferjuna Sæfara sem er á áætlun 2031 og verður þá orðin 40 ára gömul. Ég hefði líka viljað sjá mun sterkari áform um að taka fyrir og breyta vetrarþjónustu á Dettifossvegi sem lokar í fyrstu snjóum. Það ætti að vera, virðulegur forseti, forgangsmál hjá stjórnvöldum, þegar farið er í að byggja upp samgöngumannvirki eins og Dettifossveg sem kostaði 4 milljarða, að nýta þetta samgöngumannvirki þannig að það loki ekki í fyrstu snjóum með tilheyrandi raski fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðinu.
Ef við færum okkur yfir á Austfirði og Austurland þá er ánægjulegt að ekki er búið að slá af veginn um Reyðarfjarðarbotn, hann er á áætlun og það er verið að fara í nýjan veg um Reyðarfjarðarbotn og það er líka ánægjulegt að ný akbraut og flughlað á Egilsstaðaflugvelli sé á fyrsta tímabili áætlunarinnar. En eins og á Norðurlandi eystra eru vonbrigðin því miður miklu fleiri. Suðurfjarðavegur frá Fáskrúðsfirði til Breiðdalsvíkur er ekki á dagskrá fyrr en 2031–2040. Þetta hefur verið, samkvæmt skýrslum, einn hættulegasti vegarkafli landsins. Það er alveg ótrúlegt að þessum vegaframkvæmdum sé alltaf ýtt aftar og aftar, það er í rauninni ótrúlegt miðað við hvað vegurinn er orðinn slæmur og umferðaröryggi ógnað á veginum eins og hann er í dag. Ég mun leggja það til, virðulegur forseti, að nauðsynlegt sé að skoða kosti þess að gera göng milli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar og á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur, 4,9 km og 3,9 km, sem munu stytta vegalengdina um a.m.k. einhverja 20 km í staðinn fyrir að byggja upp nýjan veg út á annesjum og um skriður.
Síðan er verið að færa til peninga innan fjórðungsins en það er ekki verið að auka peninga. Það er verið að taka niður 800 millj. kr. hringtorg og breytingu á þjóðvegi á Egilsstöðum og færa þær yfir í Öxi. En þrátt fyrir að einhverjir peningar komi kannski úr innviðafélaginu þá er það nú þannig með Öxi að allur þunginn er á síðasta hluta tímabilsins. Þrátt fyrir að 400 milljónum frá innviðafélaginu verði bætt við þá er eiginlega allur þungi framkvæmdarinnar ekki fyrr en eftir 10–15 ár.
Og nú langar mig, virðulegur forseti, að ræða aðeins um jarðgöng. Það var eiginlega ótrúlegt að horfa upp á pólitískar reyksprengjur ráðherrans þegar hann breytti forgangsröðun jarðganga á Íslandi og bar fyrir sig fagleg sjónarmið sem hinir og þessir sérfræðingar komu og hröktu. Það hefði í rauninni verið miklu heiðarlegra, eins og ég sagði í fyrri umræðu, að koma bara fram og segja: Þetta er pólitísk ákvörðun. Þetta er pólitísk ákvörðun en ekki fagleg. Það er þá bara allt í lagi, þá hefðum við getað tekið umræðuna út frá því. Það er þannig, virðulegur forseti, að sá sem hér stendur hefur ekkert á móti Fljótagöngum, hefur ekki á móti neinum gangaframkvæmdum yfirhöfuð. En það er bara þannig að Austfirðingar voru næstir í röðinni og þetta var gríðarlegt áfall fyrir samfélagið, sérstaklega á Seyðisfirði. En akkúrat það sem ráðherra gerði, þegar hann breytti allri gangaröðinni, í rauninni undirstrikar það að það er ekkert að marka þessar áætlanir. Þær ráðast bara af duttlungum hvers ráðherra, pólitískum áherslum hvers ráðherra á hverjum tíma. En það hefði þó verið a.m.k. bragur á því að setja Austfirði næsta í röðina en ekki nr. 2/3. Það er algerlega á hreinu og það verður að vera skýrt að næsta gangaframkvæmd á Íslandi á eftir Fljótagöngum verður að vera á Austurlandi. Hún verður að vera þannig að við erum að fara í Fjarðarheiðargöng og önnur göng sem tengja Fjarðabyggð við Egilsstaði, mögulega með göngum undir Eskifjarðarheiði og klára að tengja Austfirði alla sem einn, klára það til að Austfirðingar losni við það að keyra Fjarðarheiði og Fagradal á hverjum einasta degi til vinnu. Það eru 200–300 manns sem keyra frá Egilsstöðum niður á Reyðarfjörð á hverjum einasta degi til vinnu.
Jarðgangaáætlun er í rauninni bara ákvörðun um að við séum með áætlun, að við ætlum að halda þessari áætlun og við séum með forgangsröðun. Síðan eru það bara 10–12 milljarðar sem fara á hverju ári í það að bora göng samkvæmt áætluninni og samkvæmt þeirri forgangsröðun sem er búið að setja. Það er jarðgangaáætlun. Síðan bara malla þessar framkvæmdir áfram, virðulegur forseti.
Norðausturkjördæmi er að mörgu leyti gleymda kjördæmið í þessari samgönguáætlun. Þar eru risastór verkefni, eins og ég er búinn að fara hér yfir, sem eru þjóðhagslega mikilvæg verkefni sem eru sett á annað og þriðja tímabil. Ég vil benda þingheimi á það að af 15 brúm á Íslandi sem eru með þungatakmarkanir eru 12 í Norðausturkjördæmi. Það eru 12 brýr í Norðausturkjördæmi af 15 sem eru með þungatakmarkanir. Það er óásættanlegt þegar bið á þessum samgöngumannvirkjum ógnar umferðaröryggi vegfarenda og stendur í vegi fyrir verðmætasköpun á svæðinu.
Á komandi haustþingi mun ég boða mál er snerta breytingar á samgönguáætlun. Þau eru að jarðgöng á Austurlandi verði strax á eftir Fljótagöngum og þar verði horft til þess að farið verði samtímis í jarðgangakosti sem tengja Seyðisfjörð og Fjarðabyggð við Egilsstaði. Farið verði í rannsóknir vegna jarðganga milli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar í stað þess að byggja upp Suðurfjarðaveg milli staðanna. Það eru augljósir kostir við 4,9 km göng sem stytta vegalengd um 16 km á þjóðvegi 1 ásamt sparnaði í vetrarþjónustu og viðhaldi vegarins. Skoðað verði að Lónsheiðargöng fari í einkaframkvæmd. Þar losnum við við Hvalnes og Þvottárskriður og þetta er stytting upp á 12 km á þjóðvegi 1. Framkvæmdum við Jökulsá á Fjöllum verði flýtt til 2028 frá 2031–2040. Hringtorgi við þjóðveg 1 í Eyjafjarðarsveit verði flýtt til 2027. Svo sjáum við til hvort peningarnir komi frá innviðafélaginu, frá frúnni í Hamborg, og ef ekki þá verði aðflugsljós úr norðri á Akureyrarflugvelli sett á dagskrá á næsta ári.
Virðulegur forseti. Mig langar að ræða hér aðeins um tvö önnur verkefni sem eru fyrir utan Norðausturkjördæmi. Eins og við vitum þá er það nú þannig þegar samgönguáætlun er til umræðu að þingmenn koma upp og tala kannski meira um framkvæmdir sem eru í þeirra eigin kjördæmi en það eru hér tvö verkefni sem mig langar að tala um. Það er í fyrsta lagi Skarfaskersbryggja í Þorlákshöfn. Ef peningarnir koma úr innviðafélaginu, ef, þá eiga að koma fjórum sinnum 129 milljónir, samtals 516 milljónir á fjórum árum, í Skarfaskersbryggju í Þorlákshöfn. Það er í rauninni þannig, eftir samtöl við sveitarstjórn, að þessir peningar þyrftu að koma á tveimur árum en ekki fjórum árum, virðulegur forseti. Þá er líka spurning hvort sveitarfélagið þurfi hreinlega að lána ríkinu fyrir þessari framkvæmd. En þessir peningar þyrftu að koma á tveimur árum en ekki fjórum. Ég held að það sé eitthvað sem þurfi að skoða.
Samgöngur til Vestmannaeyja. Það hefur ekki farið fram hjá neinum, hvorki hér inni né þeim sem lesa blöðin, að samgöngur til Vestmannaeyja eru búnar að vera með algerlega ólíðandi hætti núna í vetur. Ráðherra talar um að nýr Baldur eigi að vera eins og Herjólfur og leysa hann af. Þetta sagði hæstv. ráðherra á opnum fundi með samgöngunefnd. En samkvæmt samgönguáætlun á nýr Baldur ekki að koma fyrr en 2036. Þá verður reyndar gamli Baldur orðinn 45 ára þegar hann verður endurnýjaður og þá á hann að vera eins og Herjólfur, en reyndar stendur til að endurnýja Herjólf 2038. En, virðulegur forseti, miðað við það að engar aðrar ferjur eru fjármagnaðar í þessari samgönguáætlun og eru allar fyrir utan framkvæmdaráætlunartímabilið, sem er mjög hentugt, þá veltir maður fyrir sér hvernig hæstv. ríkisstjórn og hæstv. ráðherra ætla í rauninni að leysa úr ferjumálum sem nú eru aðkallandi. Vestmannaeyingar geta ekki lengur búið við það ástand sem þeir búa við núna. Það er mjög þægilegt að geta sagt: Ja, næsti Baldur, hann á bara að verða eins og Herjólfur og getur þá leyst hann af ef Herjólfur bilar o.s.frv. En svo kemur bara á daginn að eftir tíu ár, og reyndar algerlega ófjármagnað, á kannski nýr Baldur að koma. Er þetta svarið sem Vestmannaeyingar fá? Ég held, virðulegur forseti, að þetta sé mál sem þarf að ávarpa og það er sérstaklega ferjuhlutinn í samgönguáætlun.
Fyrstu fimm árin á að setja 362 milljarða í samgönguáætlun. Þetta eru, ef við deilum þessu jafnt niður, um 72 milljarðar á ári. Fjárlög ársins eru núna rétt tæplega 1.700 milljarðar. Við erum að setja 72 milljarða í samgöngumannvirki, samgöngumál að meðaltali. Það er 4% af fjárlögum, virðulegur forseti. Það er nú ekki meira. Við tölum um þetta eins og þetta séu stórar fjárhæðir og vissulega eru þetta stórar fjárhæðir. En þegar við horfum á heildarmyndina af kostnaði og rekstri ríkisins þá eru þetta ekki stórar upphæðir. Ég held að það væri kannski ákveðin áskorun — ég veit að hún er erfið fyrir vinstri stjórn — að núverandi stjórnvöld, sú vinstri stjórn sem nú er við völd, myndu fara í það að hagræða almennilega í rekstri ríkisins, myndu minnka eyðslu, almenna eyðslu sem er búin að vera hér í hin og þessi mál og forgangsraða fjármunum ríkisins í rétta hluti. Leggja kannski aðeins minni áherslu á slagorðin og umbúðirnar og hugsa stórt og láta verkin tala. Það væri, virðulegur forseti, mikill bragur á því fyrir núverandi hæstv. ríkisstjórn.
Það er ýmislegt við samgönguáætlun að athuga eins og ég hef komið hér inn á og (Forseti hringir.) því miður eru stórar framkvæmdir, sérstaklega í Norðausturkjördæmi, allt of aftarlega í áætluninni.