samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir alveg ljómandi ræðu og tek undir með hv. þingmanni að við þingmenn Norðausturkjördæmis erum kannski ekki brosandi í hringinn allan daginn yfir þessari samgönguáætlun, ég held að það sé alveg ljóst. En sumir geta brosað. Ég ætlaði svo sem ekki að gera það að umtalsefni hér í mínu fyrra andsvari til hv. þingmanns. En þegar kemur að því að tala um fullfjármagnaða samgönguáætlun, við höfum ekki séð framan í fjármálaáætlun. Sömuleiðis bíðum við spennt eftir að sjá frumvarp sem snýr að innviðafélagi því að þetta er allt samhangandi. Þegar horft er til þess að hér er verið að blása til sóknar, sem er bara vel — við höfum viljað sjá sóknina beittari og á breiðari grunni og meiri í Norðausturkjördæmi. En er hv. þingmaður á sama róli og ég þegar kemur að því að velta fyrir sér: Hvaðan eiga peningarnir að koma sem eiga að fara í þær framkvæmdir sem eru þá alla vega á þessari framkvæmdaáætlun?