157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:37]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Hæstv. ríkisstjórn skortir ekki hugmyndaflugið í að skattleggja land og lýð. Hana skortir ekki hugmyndaflugið til að leggja skatta og álögur á fólk og fyrirtæki í landinu. Hækkun vörugjalda á bifreiðar, næstum tvöföldun, úr 10,9 milljörðum í 19. Kílómetragjald. Og svona getum við haldið áfram að tala um alls konar hækkanir. Og núna með innviðafélaginu þá á, ofan á allar þessar hækkanir, að bæta við veggjöldum. Það á ekkert að lækka á móti. Það á að bæta við veggjöldum. Það er það sem þessi hæstv. ríkisstjórn ætlar að gera. Hún ætlar að reyna að leggja meiri og meiri álögur á eigendur ökutækja þannig að það fer að verða forréttindafólk sem getur leyft sér að eiga ökutæki á Íslandi í dag.