samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið, sem svo sem var ekki tengt þeirri spurningu sem ég bar fram en það er svo sem allt í lagi. En upplýsingarnar voru góðar frá hv. þingmanni. Mig langar í seinna andsvari að spyrja hv. þingmann út í Fljótagöng. Vissulega er það gleðiefni að það eigi að hefja framkvæmdir að ári liðnu, þ.e. 2027. Það er gleðiefni. En einhvern veginn er það þannig að ég hef ekki rekið augun í þá fjármuni sem liggja fyrir sem snúa að Fljótagöngum og eiga að fara í það verkefni. Ef hv. þingmaður sér betur en ég þá væri gott að fá svar við því hér í seinna andsvari frá hv. þingmanni. En aftur á móti væri það verulega fróðlegt fyrir okkur öll, af því að ég get fullyrt það að við stöndum öll að baki því að Fljótagöng fari að fara af stað, að fá að vita: Hvar eru peningarnir?