157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:40]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er von að hv. þingmaður spyrji sig: Hvar eru peningarnir? Hér er því haldið fram og búið að keyra hér fyrstu fullfjármögnuðu samgönguáætlunina í sögu mannkyns og það voru þvílíkar yfirlýsingar um að ræsa vélarnar og stöðva kyrrstöðuna og ég man ekki hvað þetta heitir allt saman. En svo á þetta allt að vera inni í einhverju innviðafélagi sem er reyndar ekki búið að stofna og þar eiga einhvern veginn peningarnir bara prentast og verða til og þaðan eiga peningarnir að koma. En auðvitað vitum við það að á endanum munu peningarnir alltaf koma frá skattgreiðendum í landinu. Þeir koma ekki frá neinum öðrum. Það verða skattgreiðendur í landinu sem munu borga af þessum lánum, það eru skattgreiðendur í landinu sem munu borga veggjöldin. Hæstv. ríkisstjórn ætlar ekki að leggja neitt til. Það verða skattgreiðendurnir í landinu, fólkið og atvinnulíf í landinu, sem munu borga þetta á endanum.