157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:41]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innblásna ræðu. Ég vil nú byrja á að taka undir með hv. þingmanni að þessi samgönguáætlun er auðvitað ekki bara vonbrigði heldur hreinlega högg í magann fyrir Norðausturkjördæmi. Það má nefna framkvæmdir og margt annað er varðar þessa áætlun, einkum og sér í lagi í Norðvesturkjördæmi, sem er talsvert og ef ekki er hraustlega afturþung. En mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann geti látið sér detta í hug einhverjar skýringar sem liggja að baki því að framkvæmd eins og að endurnýja brúna yfir Jökulsá á Fjöllum skuli ekki fá fjármagn samkvæmt þessari áætlun, ef ég les rétt út úr töflunni, fyrr en á tímabilinu 2031–2035. (Gripið fram í.) Já, svo áfram síðar, en þar fyrst fer að grilla í einhverjar krónur á þessu samgönguminjasafni.