157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:42]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það eru mörg samgöngumannvirki sem þarf að endurnýja, það þarf nýjar brýr og annað. En hér erum við með brú sem er orðin 79 ára gömul. Hún er á þjóðvegi 1 og hún verður farin að nálgast öldina þegar hæstv. ríkisstjórn ætlar að vera búin með þessa brú, ef hún verður þá ekki bara búin að klára sig sjálf ofan í ána. Hún er strax farin að standa atvinnulífinu í kjördæminu fyrir þrifum og ég get bara tekið dæmi. Nú er verið að senda forsteyptar einingar frá Egilsstöðum til Akureyrar fyrir nýtt hótel og það er hægt að fara með helming þungans yfir brúna út af þungatakmörkunum. Varaleiðin, hin leiðin, væri þá að fara niður Dettifossveg og fara yfir Jökulsá í Öxarfirði. En hún er jafn slæm og það er ekki eins og maður sé að fara að lengja leið sína. En það er mér óskiljanlegt af hverju þessi brú er ekki framar í forganginum.