samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það var raunar svo gott og það gerist nú afar sjaldan hér að svörin séu svo góð að þau svari líka næstu spurningu sem hv. þingmaður hafði þá ekki fengið að frétta af að ég hygðist spyrja hann út í brúna yfir Jökulsá í Öxarfirði. Ég er búinn að vera að fletta samgönguáætlun og þessari breytingartillögu og ég finn ekki þessa brú. Hún er ekki síður ónýt, hv. þingmaður, en efri brúin. Hugsanlega veit hv. þingmaður eitthvað meira um það en ég. En það er eins með aðra framkvæmd sem mig langar að nefna hérna örstutt sem eru gríðarleg vonbrigði. Það er brú á þjóðvegi 1 við Fosshól, fólk þekkir það kannski betur sem brúna í nágrenni við Goðafoss. Þar sé ég ekki neinar upphæðir koma inn til framkvæmda fyrr en 2030, smotterí, bara klink, og svo byrjar fjármagnið aftur að aukast (Forseti hringir.) eftir 2031. En fyrst og fremst langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi einhvers staðar fundið eitthvað um brúna yfir Jökulsá í Öxarfirði.