samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég verð að segja nei, ég hef ekki séð neina töflu. Ég er ekki að segja að hún geti ekki verið þarna en ég hef ekki séð brú yfir Jökulsá yfir Öxarfjörð á samgönguáætlun. Það má vera að menn horfi frekar á Jökulsá á Fjöllum, að klára hana. En ef hún er einhvers staðar lengst aftast þá geturðu rétt ímyndað þér, hv. þingmaður, hvar Jökulsá í Öxarfirði er. En auðvitað, ef við þyrftum að velja, þá er Jökulsá á Fjöllum á þjóðvegi 1 algjört forgangsatriði og hún er bara farin að standa kjördæminu fyrir þrifum. Síðan er það rétt sem hv. þingmaður segir, að aðkoman að brúnni, og sérstaklega þá að austan og norður, þegar þú kemur niður úr brekkunni að brúnni, aðkoman að brúnni við Fosshótel við Goðafoss, sem flestir þekkja á Skjálfanda, er stórhættuleg. Ég myndi ekki vilja vera á stórum trukk að vetri til í myrkri að fara þarna niður á þessa brú.