samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og sömuleiðis fyrir afar gott samstarf í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Við höfum tekið á móti ótal mörgum gestum og fengið umsagnir þar sem ég held að allir landshlutar séu sammála um eitt; þeir vilja fá meira og þeir vilja fá það fyrr. Það eru auðvitað bara þessi mynd sem teiknast upp þegar maður fer að rýna í samgöngumál á Íslandi og þessa stöðu sem við erum í núna, að auðvitað hafa allir sitthvað til síns máls þegar kemur að þessu. Þessi margumrædda innviðaskuld er mikil og við þurfum að ná betur utan um hana.
Í ljósi þess að hv. þingmaður vék hér mikið að ferjumálum langaði mig að fá kannski hans álit á því sem við ávörpum í nefndarálitinu þar sem við köllum hreinlega eftir því að hér verði sett á heildstæð ferjuáætlun til þess að undirstrika mikilvægi þess að koma skikki á þessi mál, (Forseti hringir.) vegna þess að ég tek undir með hv. þingmanni að þessir þrír kostir eru orðnar allt of gamlir og við þurfum að fara að spýta í lófana þar. En auðvitað er þetta allt saman lifandi plagg og mannanna verk að breyta þannig að við þurfum bara að hjálpast að með það.