157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:48]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar fyrri spurningu hér. Ég tek bara heils hugar undir það og ég er alveg sammála því að við verðum að vera með heildstæða áætlun. En það er eitt að búa til áætlun og síðan er það pólitísk ákvörðun, og þá er það hv. þingmanns sem formanns umhverfis- og samgöngunefndar, sem ég þakka mjög fyrir samstarfið í nefndinni núna í vetur, það er búið að vera mjög farsælt og gott — það þarf þá líka að sækja fé til þess því að það er eitt að vera með áætlun og annað að fá fé í áætlunina. Það er ekki fyrr en við leggjum peninga á borðið og segjum: Þetta eru peningarnir sem við ætlum að setja í ferjuuppbyggingu, sem við getum farið að ræða ferjuáætlun fyrir alvöru. Við megum ekki gefa okkur langan tíma í að búa til ferjuáætlun enda held ég að það sé í rauninni kannski ekkert mjög flókið. Það á ekki að taka langan tíma, ef við gefum okkur einhverja mánuði í útboð á ferjuáætlun. En síðan þarf þá að fara í að koma með fjármagnaða ferjuáætlun.