samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Það er einmitt þetta með peningana og hvernig við fjármögnum hlutina, vegna þess að það sem við erum að undirstrika í okkar nefndaráliti er að við erum með ákveðinn ramma sem settur er í fjármálaáætlun og fjárlögum hverju sinni sem eyrnamerkja á í þetta. Ég held við séum öll sammála um að auðvitað mætti fara meira í þennan ramma, að sjálfsögðu. Við erum líka á sama tíma að reyna að tryggja aðhald í ríkisrekstrinum og ná utan um hallann. Þetta er auðvitað bara risastórt viðfangsefni sem við þurfum að vinna í. En við leggjum hér til á blaðsíðu 18 í nefndarálitinu breytingartillögutöflu. Ég veit að hún er skilyrt við það að ákveðin verkefni fari inn í innviðafélag og það verður spennandi að sjá hvernig það mun þróast og hvernig það samspil fer. En þar erum við m.a. að leggja til undirbúning fyrir nýja ferju yfir Breiðafjörð, aðflugsljós á Akureyrarflugvelli. Umrætt hringtorg, sem hv. þingmaður talaði um í Eyjafirðinum, er þarna inni líka, vegna þess að við vorum sannarlega að horfa til þessara þátta sem komu fram í umsögnum. En takmarkandi þátturinn hér er fjármagnið, það er alveg rétt. Þess vegna er þetta okkar útspil, (Forseti hringir.) að leggja til þessar breytingartillögur sem við munum leggja fram, vonandi sem nefnd og vonandi samstiga sem nefnd, komi til þess fjármagn.