157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:50]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Þetta snýst allt um forgangsröðun fjár og þetta snýst líka um að hagræða í rekstri ríkisins til að eiga meiri pening til að geta farið í að byggja upp samgöngumannvirki. En það er náttúrlega ákveðnum spurningum ósvarað. Það er rétt sem hv. þingmaður bendir á að hér er verið að tala um að mögulega komi þessir peningar úr innviðafélaginu en þar verður ráðin einhver fagleg stjórn sem lýtur ekki pólitísku valdi þannig að þó svo að þingheimur eða meiri hlutinn ákveði að ætla að sækja peninga inn í innviðafélagið gætu hinir faglega ráðnu stjórnarmenn bara sagt: Heyrðu, nei, nei, við erum ekki að fara að taka Kjalarnesveg eða eitthvað og láta ykkur fá 6,3 milljarða eða eitthvað. Við erum ekkert í þessu, við erum fagleg, við ætlum að gera þetta svona og lútum ekki pólitískum fyrirmælum. Það gæti gerst. En ég vona svo innilega að þessir 6,3 milljarðar komi þarna inn af því að það eru mjög þarfar framkvæmdir sem eru inni í þessari töflu.