157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:52]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína yfirferð. Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja satt að segja, en við skulum koma niður einhvers staðar í þessu öllu saman. Ég heyri að það gætir ákveðins misskilnings á ýmsum stöðum, eins og t.d. varðandi tillögu okkar um að flýta mjög mikilvægri framkvæmd við Skarfaskersbryggju í Þorlákshöfn, losni um fjármagn í samgönguáætlun ef innviðafélagið tekur þar einhver verkefni sem eru fjármögnuð. En þá á ekki að fara að dreifa því yfir fjögur ár. Það er ekki rétt, það er ekki okkar vilji. Það á bara hreinlega að færa það um tvö ár, þannig að þetta er misskilningur.

Svo varðandi Öxi tek ég undir að það væri alveg frábært að klára það fyrr en það er samt ekki verið að horfa á 10–15 ára tímalínu í þeim efnum. Það er verið að horfa á að hún klárist á öðru tímabili, fyrir árið 2035. Ef þessar auka 400 milljónir komast þarna inn erum við að tala um að við séum að fara að klára 40% af Öxi á tíma aðgerðaáætlunar, vissulega 60% á öðru tímabili en 40% á tíma aðgerðaáætlunar. (Forseti hringir.) (Gripið fram í.) Já, ég held að ég verði bara að hlusta á þínar hugleiðingar og koma svo með spurningar næst.