157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:53]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar fyrri spurningu. Hér stendur: Skarfaskersbryggja í Þorlákshöfn: Framkvæmdum flýtt. Og svo eru 129 milljónir hér 2027, 2028. (ÁBH: … Það er verið að færa milli ára.) Það er rétt. (Gripið fram í.) Það er rétt. En þá eru þetta bara tvisvar sinnum 129 milljónir. (ÁBH: Alveg eins og er í … ) En það setur þetta í rauninni í annað samhengi af því að það er ekki nógu mikið miðað við það sem sveitarstjórn hefur talað um að þyrfti að gera í bryggjunni. Að þetta þyrftu að vera meira eins og 500 milljónir sem þyrftu að fara í Skarfaskersbryggju frekar en 250 milljónir til að hægt sé að ljúka framkvæmdum.