samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna svar. Já, þetta er auðvitað í samhengi við kostnaðarskiptingu ríkisins, þ.e. styrkurinn frá ríkinu til hafnarinnar varðandi framkvæmdir er í ákveðnum hlutföllum og það er verið að breyta þeim aðeins í þessari samgönguáætlun þannig að hafnir sem standa styrkum fótum fá minna hlutfall endurgreitt í styrk en þær sem ekki standa jafn styrkum fótum.
En mig langar aðeins að koma að brúm, af því að hv. þingmaður talar mikið um brýr sem þarfnast endurbóta og ég tek heils hugar undir það. Mig langar að nefna að nú á t.d. að hefjast handa við nýja brú í Aðaldal, yfir Skjálfanda. Hún er 90 ára og búið að þurfa að loka henni fyrir þungaumferð. Mig langar bara að nefna að það eru enn þá til gamlar brýr; það eru þrjár sem voru smíðaðar 1900–1920, 13 sem voru smíðaðar 1921–1930 og 23 frá 1931–1940, af því að hv. þingmaður talar um að hér þurftum við bara að horfa á heildarmynd af kostnaði á rekstri ríkisins og hugsa stórt og láta verkin tala. Við erum hér að vinna upp risastóra innviðaskuld með stórátaki í að byggja upp hjúkrunarheimili, stórátaki í að hefjast aftur handa við að afla orku og stórátaki í samgöngumálum. (Gripið fram í.)