157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:56]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég verð nú fyrst að fá að bregðast við: stórátak í því að afla orku hljómar svolítið sérstakt þegar við vorum með ramma upp á fimm virkjanir og þrjár stærstu virkjanirnar voru settar í biðflokk og tvær minnstu virkjanirnar fengu framgang. Það er stórátakið.

Hér kemur hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir og þylur upp alls konar brýr. En við erum að tala um brýr og sérstaklega brú sem er á þjóðvegi 1. Það er hvergi annars staðar hægt að fara og hún í rauninni farin að hamla flutningum af því að fyrir t.d. Austurland er það þannig að þú kemst heldur ekki suður fyrir. Frægt er dæmið um krana sem þurfti að fara með með skipi til Færeyja og aftur til Reyðarfjarðar. Það lýsir í rauninni því að Austurland er orðið eyland og það er ekki orðið hægt að eiga eðlileg viðskipti og stunda þungaflutninga innan kjördæmisins. Það er það sem ég er að tala um. Það eru ótal brýr í Norðausturkjördæmi sem þyrfti að taka í gegn og eru orðnar gamlar en þarna erum við að tala um brú sem er á þjóðvegi eitt og er orðin flöskuháls í atvinnuuppbyggingu á svæðinu.