samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir hreint bara frábæra ræðu. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við öll horfum fram á við, eins og hv. þingmaður talaði um, og hættum að horfa í baksýnisspegilinn. Ég held að það sé alveg hárrétt sem hv. þingmaður kom inn á, ég held að allir þingmenn sem hafa tekið sæti á Alþingi hafi viljað gera meira í gegnum tíðina, ég held að það sé alveg ljóst og tek undir með hv. þingmanni hvað það varðar. En mig langar í mínu fyrra andsvari að koma inn á Fjarðarheiðargöng af því að hv. þingmaður nefndi þau í sinni ræðu, sem ég fagna mjög, og undirstrikaði að þessi göng eru þau einu göng sem eru tilbúin til útboðs. Því langar mig að spyrja: Kemur þá til greina, ef við finnum flöt á því í gegnum innviðafélagið eða þær leiðir sem verið er að teikna hér upp og við förum vonandi í umræðu um fljótlega, (Forseti hringir.) að við náum utan um það verkefni og reynum að sameinast um að nýta þá krafta og þá undirbúningsvinnu sem þegar hefur orðið fyrir austan?