157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:19]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og bara til þess að nýta tímann, vegna þess að hann er líka dýrmæt auðlind, þá held ég, eins og ég vék að í minni ræðu, að það að horfa á jarðgangakostina bæði fyrir austan og vestan sem ótengda kosti er að mínu mati kannski ekki skilvirkasta leiðin. Ég er mjög spennt að sjá hvernig innviðafélagið getur spilað lykilhlutverk í þessu til framtíðar þegar kemur að því að reyna að fara í þá fjármögnun, hvort það sé hægt að stofna einhvers konar dótturfélög eða annað utan um þau jarðgangaverkefni sem ná ekki þessu markaðsprófi umrædda sem innviðafélagið gerir kröfu um. Ég held að við eigum að sjálfsögðu að sameinast um alla þá jarðgangakosti sem eru brýnir og nauðsynlegir á Íslandi vegna þess að það er stóra verkefnið okkar að finna leiðir til að fjármagna þá. Eins og ég sagði í minni ræðu þá er takmarkandi þátturinn fjármögnunin og við eigum auðvitað að sameinast um það að reyna að finna þessa fjármuni, að sjálfsögðu, en eins og ríkisfjármálin blasa við núna þá eru þeir því miður ekki til. Ég er spennt að sjá hvernig innviðafélagið getur spilað stóra rullu í framtíðinni þegar kemur að því að rjúfa þessa kyrrstöðu og tryggja betri samgöngur bæði fyrir austan og vestan.