samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er svo rétt einmitt að leggja áherslu á að vera með marga kosti fullrannsakaða og hannaða, ég held að það skipti miklu máli á þessum tímapunkti að á meðan það er verið að bora Fljótagöng þá nýtum við tímann til að vera búin að hanna og rannsaka sem flesta kosti þannig að við eigum þá tilbúna þegar ríkisfjármálin leyfa og/eða ef innviðafélagið fer á flug. Við getum farið svipaðar leiðir og t.d. Færeyingar hafa farið eða Danir sem hafa svolítið masterað þetta konsept. Ég segi: Ef þessi lönd geta þetta ættum við að geta þetta líka og við þurfum bara að hefjast handa. Við þurfum bara að byrja að fikra okkur áfram vegna þess að mínu mati hafa þessir landshlutar beðið of lengi eftir því að standa jafnfætis öðrum þegar kemur að öruggum heilsárssamgöngum innan þeirra byggðarlaga þar sem fólkið býr og starfar.