samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir fína ræðu og þakka henni jafnframt fyrir góða stýringu á umhverfis- og samgöngunefnd og fyrir samstarfið yfirhöfuð. —Hef ég tvær mínútur? (Forseti (BergÓ): Eina. )Ég vel að hafa tvær. En þetta er alveg rétt sem þingmaðurinn segir, allir vilja meira og fyrr. Það er mjög vel orðað hjá hv. þingmanni. Hún talaði um í sinni ræðu að vegir væru að grotna niður. Mig langar af því tilefni að spyrja hana út í það, hún hefur sjálfsagt fengið svipað erindi og ég frá aðilum í Kaldrananeshreppi og Árneshreppi, að þar eru vegir að grotna niður og þar er ástandið bara skelfilegt. Þar býr fólk og þar er fólk að reyna að vera með bæði hótelrekstur og annan atvinnurekstur. Það er ekki verið að biðja um að það sé malbikað. Það er bara verið að biðja um að vegirnir verði lagaðir þannig að það sé óhætt að keyra þá. Mín spurning til þingmannsins er: Er hægt að tryggja einhver fjárframlög til að það sé hægt að ganga í þetta verk? (Forseti hringir.) Það er búið að lofa íbúum bót og betrun lengi og ekkert gerist. Sérðu einhverja leið?