samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur sömuleiðis fyrir samstarfið á þessum vettvangi og eins og ég hef skynjað vinnuna í umhverfis- og samgöngunefnd í vetur þá höfum við lagt kapp á að horfa á hlutina saman, með sameiginlegum gleraugum, til að reyna að sjá alla þá fleti sem kannski náðust ekki í fyrsta kasti en þarf að horfa til. Einn af þeim er nákvæmlega þessi vegkafli sem hv. þingmaður talar um hér. Ég hef haft miklar áhyggjur af vegsamgöngum á þessu svæði. Það verður að fara að finna flöt á því að tryggja að íbúar og atvinnurekendur séu ekki í þeirri stöðu að vera með fólk hreinlega í áfallahjálp eftir að hafa komist á leiðarenda ef það kemst þá alla leið. Eins og þetta er yfir vetrartímann þá er þetta alger hryllingur. Ég hef lagt kapp á það í mínum samtölum bæði við ráðherra og við Vegagerðina að líta sérstaklega til þess að koma þó með einhverjar bráðaaðgerðir til að bregðast við þessari stöðu núna. (Forseti hringir.) Svo í samhengi við Hvalárvirkjun og annað þá verður nauðsynlegt að fara í vegaframkvæmdir að öðru leyti á þessum slóðum (Forseti hringir.) þannig að þetta er klárlega svæði á í Norðvesturkjördæmi sem hefur hreinlega setið á hakanum allt of lengi. Ég tek undir það með hv. þingmanni.
(Forseti (BergÓ): Forseti minnir á ræðutíma.)