samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir prýðisgott andsvar og ég vona bara að við getum unnið saman að því að tryggja fjármagn og þetta geti farið framar í forgang þannig að fólk geti ekið þessa vegi án þess að vera hrætt um að lenda í alvarlegum slysum sem náttúrlega gerast ef fólk keyrir ofan í djúpar holur og það fer allt í steik.
Í seinni spurningu langaði mig að spyrja aðeins út í farnetið. Þessir fjármunir sem er verið að taka til hliðar miðast við það að ef Kjalarnesið fer inn í innviðafélagið, þ.e. vegbúturinn þar. Hvað ef Kjalarnesið fer ekki inn í innviðafélagið? Verður þá ekki hægt að hraða neinu varðandi farnetið á Vestfjörðum sérstaklega en einnig annars staðar?